Myndir frá stórbrotnum sigri KA

Blak
Myndir frá stórbrotnum sigri KA
Frábær karakter að vanda (mynd: Þórir Tryggva)

KA vann stórkostlegan 3-2 sigur á Aftureldingu í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í blaki kvenna í KA-Heimilinu í gær. Gestirnir byrjuðu leikinn betur og unnu fyrstu tvær hrinurnar en frábær karakter KA-liðsins sneri leiknum og stelpurnar unnu að lokum með minnsta mun í oddahrinu.

Með sigrinum er KA komið í 2-1 forystu í einvíginu en vinna þarf þrjá leiki til að hampa titlinum og geta stelpurnar okkar því tryggt sér titilinn með sigri í næsta leik liðanna sem fer fram laugardaginn 4. maí næstkomandi klukkan 14:00 að Varmá í Mosfellsbæ.


Smelltu á myndina til að skoða myndir Þóris Tryggva frá leiknum

Þórir Tryggvason ljósmyndari var á leiknum í gær og býður hér til myndaveislu frá leiknum. Kunnum honum bestu þakkir fyrir framtakið og ykkur fyrir frábæran stuðning en fjölmargir áhorfendur létu vel í sér heyra og hjálpuðu stelpunum að sækja sigurinn mikilvæga.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is