Mikilvægur félagsfundur í dag

Almennt | Fótbolti | Handbolti | Júdó | Blak | Tennis og badminton

KA heldur í dag opinn félagsfund þar sem félagið mun kynna framtíðaruppbyggingu á KA-svæðinu sem og rekstrarumhverfi KA. Gríðarlega mikilvægt er að KA fólk fjölmenni á fundinn enda mikilvægir tímar framundan hjá félaginu okkar. Fundurinn hefst klukkan 17:15 í íþróttasal KA-Heimilisins.

KA stendur á tímamótum en félagið hefur stækkað gríðarlega mikið að undanförnu og nú er mikilvægt að ræða framtíðina. Ef að þú átt iðkanda í KA, ert félagsmaður í KA, styður KA í leik og keppni eða býrð á Brekkunni þá kemur málefni þessa fundar þér við.

Nú þurfum við KA menn að sýna samstöðu, sjáumst á þessum gríðarlega mikilvæga fundi, áfram KA!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is