Flýtilyklar
Árni Jóhannsson, fyrrverandi formaður KA, er látinn.
Árni var formaður KA á árunum 2005-2008 og varaformaður þar á undan.
Það er svo sannarlega hægt að eyða löngu máli í það að telja allt það upp sem Árni var félaginu en ég ætla að láta mér nægja að segja að Árni var alltaf boðinn og búinn til allra verka fyrir félagið og þá ekki síst fyrir knattspyrnudeildina. Hann vann ótrauður að öllu því sem hann tók að sér og þau verk voru fjölmörg og fjölbreytileg, það var alltaf hægt að treysta á Árna.
Genginn er góður drengur og traustur félagi. Hans verður sárt saknað.
Blessuð sé minning hans.
Ég vil fyrir hönd Knattspyrnufélags Akureyrar senda foreldrum Árna, systkinum hans og öðrum ástvinum okkar innilegustu samúðarkveðjur.
Hrefna, formaður KA