Við þurfum á ykkur að halda í stúkunni!

Handbolti

Það er heldur betur stórleikur í KA-Heimilinu á morgun, mánudag, þegar KA/Þór tekur á móti Val klukkan 18:00. Þarna mætast liðin öðru sinni í undanúrslitum Íslandsmótsins í handbolta en vinna þarf þrjá leiki til að fara áfram í lokaúrslitin og leiðir Valur einvígið 0-1.

Stelpurnar þurfa á okkar stuðning að halda til að sækja mikilvægan sigur og hvetjum við alla til að mæta í svörtu og láta í sér heyra!

Goði býður upp á grillaðar pylsur fyrir leik og því eina vitið að mæta snemma og taka þátt í stemningunni, áfram KA/Þór!


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is