Ida Hoberg til liðs við KA/Þór

Handbolti
Ida Hoberg til liðs við KA/Þór
Velkomin í KA/Þór Ida Hoberg!

KA/Þór fékk góðan liðsstyrk í dag fyrir síðari hluta keppnistímabilsins er Ida Hoberg skrifaði undir hjá liðinu. Ida kemur frá liði Randers HK í Danmörku þar sem hún hefur leikið undanfarin þrjú ár en þar áður var hún í Viborg HK en hún kemur uppúr yngriflokkastarfi Viborg.

Ida er 19 ára gömul vinstri skytta og leikstjórnandi en hefur þrátt fyrir ungan aldur mikla reynslu af meistaraflokksbolta en auk þess að spila með liði Randers hefur hún einnig stundað þjálfun hjá félaginu. Var hún hugsuð sem framtíðarleikmaður hjá Randers en liðið lenti í miklum fjárhagsvandræðum og í kjölfarið stökk stjórn KA/Þórs á tækifærið að fá Idu norður.

Hún er sterkur leikmaður sem nýtir hraða og styrk sinn vel bæði í vörn og sókn. Við erum afar spennt fyrir komu hennar norður en í samtali við heimasíðuna sagði Ida að hún væri spennt að koma til liðsins og prófa nýjar aðstæður. Þá byggir hún sjálf leik sinn á baráttugleði, vilja og stemningu sem er nákvæmlega það sem KA/Þór stendur fyrir og komið liði okkar á stall meðal þeirra bestu í efstudeild Íslands.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is