Sandra María valin í A-landsliðið!

Fótbolti

Sandra María Jessen var í dag valin í A-landslið Íslands í knattspyrnu sem leikur vináttulandsleiki gegn Nýja-Sjálandi og Sviss dagana 7.-11. apríl næstkomandi. Sandra hefur farið hamförum á undirbúningstímabilinu kemur því aftur inn í hópinn en hún lék síðast með landsliðinu árið 2020.

Sandra María hefur leikið 31 A-landsleik fyrir Íslands hönd og gert í þeim 6 mörk og verður spennandi að sjá hana aftur í landsliðsbúningnum. Sandra sneri aftur í Þór/KA fyrir síðasta sumar og hefur heldur betur látið til sín taka og á landsliðssætið svo sannarlega skilið.

Við óskum Söndru innilega til hamingju með valið og óskum henni góðs gengis í þessu spennandi verkefni.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is