KA fyrirmyndarfélag ÍSÍ

Almennt

Knattspyrnufélag Akureyrar og allar deildir innan félagsins fengu afhent viðurkenningarskjöl vegna endurnýjunar á fyrirmyndarfélagi ÍSÍ í KA-Heimilinu í dag. 

Viðar Sigurjónsson afhenti skjölin fyrir hönd ÍSÍ og tók Ingvar Már Gíslason formaður KA við skjalinu fyrir hönd aðalstjórnar KA, Sævar Pétursson fyrir hönd knattspyrnudeildar, Siguróli Magni Sigurðsson fyrir hönd handknattleiksdeildar, Arnar Már Sigurðsson fyrir hönd blakdeildar og Sigmundur Magnússon fyrir hönd júdódeildar.

KA fékk fyrst viðurkenningu ÍSÍ um að vera fyrirmyndarfélag árið 2006 og hefur borið þann titil allar götur síðan með stolti. Í endurnýjunarferlinu var handbók félagsins uppfærð og meðal annars bætt við jafnréttisstefnu, persónuverndarstefnu og nýjar siðareglur félagsins færðar í handbókina.

"Það er okkur mikið ánægjuefni að vera búin að endurnýja viðurkenningu KA sem Fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Í þessu felst mikill gæðastimpill á þá starfsemi sem fram fer innan félagsins.  það er okkur afar dýrmætt að allir þeir dugmiklu einstaklingar sem æfa eða starfa fyrir KA hafi gott aðgengi að skipulagi og markmiðum félagsins. Handbækurnar gera starf sjálfboðaliða og starfsmanna okkar auðveldara enda hafa þær að geyma flest þau atriði sem skipta máli fyrir starfsemina", sagði Ingvar Gíslason formaður Knattspyrnufélags Akureyrar.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  |  ka@ka-sport.is