Flýtilyklar
Strandhandboltamót KA um versló!
Handknattleiksdeild KA í samvinnu við Icelandic Summer Games verður með strandhandboltamót í Kjarnaskógi um verslunarmannahelgina. Mótið hefur slegið í gegn síðustu tvö ár og er stefnan sett á enn stærra og flottara mót í ár.
Mótið verður spilað á strandblaksvöllunum í Kjarnaskógi og verður leikið í blönduðum flokki, það er að segja strákar og stelpur munu spila saman. Fjórir eru inná í hverju liði, þar af einn í marki.
Sigurlið í keppni fullorðinna í fyrra
Strandhandbolti hefur notið gríðarlegra vinsælda hér á landi undanfarin ár og lofum við miklu stuði enda ræður léttleikinn ráðum í sandinum. Flott mark gildir tvöfalt og því um að gera að sýna sínar bestu hliðar, við lofum svo að sjálfsögðu mikilli sól!
Krakkamót á laugardeginum
Laugardaginn 1. ágúst fer fram krakkamót (fædd 2005-2011) og hefst mótið klukkan 12:00. Lengd mótsins fer eftir fjölda liða. Að minnsta kosti þurfa fjórir leikmenn að vera í hverju liði og leikur markmaður með í sókninni.
Þátttökugjaldið er 2.500 krónur á hvern þátttakanda og innifalið í gjaldinu er pizzaveisla og svali að mótinu loknu. Lokað verður fyrir skráningu föstudaginn 31. júlí klukkan 21:00.
Skráning fer fram hjá agust@ka.is og er um að gera að skrá sig sem allra fyrst, langbest er að hóa hóp saman og skrá heilt lið til leiks. Mikilvægt að taka fram nafn á liði við skráningu!
Ekki missa af frábærri skemmtun um Verslunarmannahelgina á Akureyri, það er nóg um að vera bæði fyrir krakka og fullorðna. Sjoppa verður á svæðinu.
Fullorðinsmót á sunnudeginum
Á sunnudeginum 2. ágúst fer svo fram mót fyrir fullorðna (2004 módel og eldri) sem hefst klukkan 13:00 og fer lengd mótsins eftir fjölda liða á mótinu.
Þátttökugjaldið er 20.000 krónur á lið og er hámark 5 í hverju liði. Innifalið í gjaldinu er pizzuveisla og ískaldir drykkir. Lokað verður fyrir skráningu laugardaginn 1. ágúst klukkan 21:00.
Skráning fer fram hjá agust@ka.is og er um að gera að skrá sig sem allra fyrst, mikilvægt að taka fram nafn á liði við skráningu!
Ekki missa af frábærri skemmtun um Verslunarmannahelgina á Akureyri, það er nóg um að vera bæði fyrir krakka og fullorðna.