Flýtilyklar
Jóhann Geir til liðs við KA
Jóhann Geir Sævarsson skrifaði í dag undir tveggja ára samning við Handknattleiksdeild KA. Jóhann sem er 21 árs gengur til liðs við KA frá Þór og leikur í vinstra horni. Fyrr í dag skrifaði hægri hornamaðurinn Árni Bragi Eyjólfsson undir hjá liðinu og verður KA því vel skipað í hornunum í vetur.
Jóhann æfði með KA í yngriflokkum áður en hann skipti yfir í Þór og þekkir hann því vel til félagsins. Auk þess er faðir hans, Sævar Árnason, mikil KA kempa sem vann allt sem hægt var að vinna með félaginu á árunum 1996-2006 en rétt eins og sonurinn lék hann í vinstra horninu.
Við bjóðum Jóhann velkominn í KA og hlökkum til að sjá til hans í horninu í gula búningnum á komandi vetri.