Fjögurra stiga leikur í Eyjum hjá KA/Þór

Handbolti

KA/Þór sækir ÍBV heim klukkan 16:00 í ansi mikilvægum leik í Olís deild kvenna. Fjögur lið berjast grimmt um sæti í úrslitakeppninni í vor og er leikur dagsins svo sannarlega fjögurra stiga leikur.

Fyrir leikinn er KA/Þór í 6. sæti deildarinnar með 10 stig og er tveimur stigum frá hinu mikilvæga 4. sæti. ÍBV er hinsvegar í 7. sætinu með 8 stig og getur því komið sér allhressilega inn í baráttuna með sigri í dag.

Stelpurnar unnu frábæran 20-18 sigur í fyrri viðureign liðanna í vetur sem fram fór í KA-Heimilinu og verður gaman að sjá hvernig fer í dag. Leikurinn verður líklegast í beinni útsendingu á ÍBV-TV.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is