Flýtilyklar
Undanúrslit bikarsins í húfi
KA/Þór sækir ÍR heim í 8-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í handbolta klukkan 19:00 í dag. Stelpurnar eru staðráðnar í að tryggja sér sæti í undanúrslitunum og hvetjum við alla sem geta til að mæta á leikinn mikilvæga.
ÍR leikur í Grill-66 deildinni og situr í 5. sæti deildarinnar og ljóst að þær munu gefa sig allar í verkefnið gegn okkar flotta liði. KA/Þór komst í undanúrslit bikarsins fyrir tveimur árum síðan og ekki nokkur spurning að stelpurnar ætla sér þangað í ár.
Lemon gerði vel við stelpurnar og buðu þeim uppá safa á videofundi liðsins í gær en þær eru með glaðningaviku í gangi. Kunnum Lemon bestu þakkir fyrir!
Fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á ÍR-TV, áfram KA/Þór!