Tap gegn ÍR í fyrsta leik eftir hlé

Handbolti
Tap gegn ÍR í fyrsta leik eftir hlé
ÍR-ingar voru betri í kvöld (mynd: Þórir Tryggva)

Baráttan í Olís deild karla hófst aftur í kvöld er KA sótti ÍR heim í Austurbergið. Þetta var fyrsti leikur KA liðsins í 44 daga eftir jóla- og EM frí. Fyrir fram var búist við erfiðum leik enda hefur ÍR-liðið leikið afar vel í vetur og var í 4. sæti deildarinnar fyrir leikinn.

KA komst í 0-1 og 1-2 en í kjölfarið gerðu ÍR-ingar næstu fjögur mörk leiksins og tóku frumkvæðið. Strákarnir lögðu þó ekki árar í bát og minnkuðu muninn í eitt mark er um 10 mínútur voru eftir af hálfleiknum.

En aftur gáfu heimamenn í og þeir komust stuttu síðar fimm mörkum yfir og leiddu svo 18-14 er flautað var til hálfleiks. Lokamarkið var ansi svekkjandi en það kom beint úr aukakasti er leiktíminn var liðinn.

Lið ÍR er þekkt fyrir að spila ansi öflugan sóknarleik og vera óhrætt við að keyra upp hraðann og það fengu okkar menn svo sannarlega að finna fyrir í kvöld. Það gerðist trekk í trekk að þegar strákarnir náðu inn marki að heimamenn keyrðu í hraða miðju og svöruðu strax með marki í bakið.

Því miður tókst strákunum ekki að finna taktinn í upphafi síðari hálfleiks og staðan var skyndilega orðin 24-15 og ljóst að lið ÍR myndi fara með sigur af hólmi. Strákunum tókst að minnka muninn aftur niður í sex mörk en nær komust þeir ekki og að lokum tapaðist leikurinn 34-22.

Grautfúlt að tapa leiknum og það svona stórt en heimamenn sýndu einfaldlega miklu meiri stöðugleika en okkar lið í kvöld. Strákarnir spiluðu á köflum flottan leik en gerðu of mörg mistök til að halda í við sterkt lið ÍR að þessu sinni. Nú er bara að vona að liðið læri af leiknum og klári næsta leik með sigri en HK kemur norður á sunnudaginn og við þurfum á ykkar stuðning að halda kæru KA-menn!

Patrekur Stefánsson var markahæstur í liði KA með 5 mörk, Daníel Örn Griffin 4, Andri Snær Stefánsson og Allan Norðberg 3, Jón Heiðar Sigurðsson og Jóhann Einarsson 2 og Einar Birgir Stefánsson, Daníel Matthíasson og Dagur Gautason 1 mark hver. Í markinu varði Jovan Kukobat 6 skot og Svavar Ingi Sigmundsson 1 skot.


Knattspyrnufélag Akureyrar  |  Dalsbraut 1 600 Akureyri  |  S. 462 3482  | blak@ka.is