Flýtilyklar
Fyrstu heimaleikir KA og KA/Þórs eftir jólafrí
29.01.2020
Handbolti
Það er sannkölluð handboltaveisla á laugardaginn í KA-Heimilinu þegar KA og KA/Þór leika sína fyrstu heimaleiki eftir jólafrí. Stelpurnar hefja leikinn klukkan 16:00 þegar þær taka á móti Aftureldingu og strákarnir taka svo við klukkan 18:00 í leik gegn HK.
Bæði lið eru í harðri baráttu um sæti í úrslitakeppninni og stigin sem í húfi eru um helgina eru gríðarlega mikilvæg. Við þurfum á þínum stuðning að halda!
Athugið að leikirnir verða báðir í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og verða því ekki á KA-TV.