Flýtilyklar
Fyrsti leikur strákanna eftir jól er í kvöld
Það er loksins komið að næsta leik í Olís deild karla eftir langt jóla- og EM frí. KA vann frábæran 35-32 sigur á Fjölni þann 15. desember og vonandi að liðið sé klárt í slaginn gegn ÍR í Austurbergi í kvöld klukkan 18:30 eftir 44 daga pásu.
ÍR hefur spilað afar vel það sem af er tímabili og er í 4. sæti deildarinnar með 18 stig á sama tíma og KA liðið er í 8.-9. sæti með 11 stig. Er liðin mættust í KA-Heimilinu fyrr í vetur var um sveiflukenndan leik að ræða hjá okkar liði. Staðan var 15-14 fyrir KA eftir fyrri hálfleikinn en þegar leið á þann seinni gekk lítið upp og lið ÍR vann að lokum sannfærandi 27-33 sigur.
Við hvetjum að sjálfsögðu alla sem geta til að mæta í Austurbergið og styðja strákana til sigurs en fyrir þá sem ekki komast verður leikurinn í beinni á ÍR-TV, áfram KA!